The Little Prince Sunset Lamp

5.890 kr
Til á lagerBara 9 eintök eftirUppselt
Magn
Gjafavara sem gleður
Vandað handbragð
Lífgar upp á umhverfið
Lítil umgjörð, Stór áhrif

Það eru fá augnablik jafn töfrandi og þegar sólin sest.

The Little Prince Sunset Lamp fangar hlýju og kyrrð kvöldbirtunnar og færir hana inn á heimilið með hönnun sem sækir innblástur í tímalausa sögu Litla prinsins. Mjúk sólarlagsbirta skapar notalega stemningu sem hentar jafnt til slökunar, lesturs eða sem hlý lýsing í lok dags.

Lampinn býður upp á þrjú birtustig sem auðvelt er að skipta á milli með segulvirkum snertirofa. Hönnunin sameinar fallega fígúru af Litla prinsinum og hlýja LED-lýsingu sem gerir lampann að jafnt hagnýtri lýsingu sem fallegum hönnunarhlut á náttborði, skrifborði eða í stofunni.

Með endurhlaðanlegri rafhlöðu og allt að 14 klukkustunda rafhlöðuendingu er auðvelt að færa lampann á milli rýma og njóta hlýrrar birtu án þess að vera bundinn við rafmagnstengi.

Vörumerki: MarTUBE

Leyfisvara: The Little Prince (Le Petit Prince)

Helstu eiginleikar:
Mjúk LED sólarlagsbirta
Þrjú stillanleg birtustig
Segulvirkur snertirofi
Endurhlaðanleg rafhlaða
Allt að 14 klukkustunda rafhlöðuending
Falleg borðlýsing og hönnunarhlutur

Tæknilýsing:
Lýsing: Hlý LED-birta
Birtustig: 3
Rafhlöðuending: Allt að 14 klukkustundir
Hleðsla: USB-C
Notkun: Borðlampi / stemningslýsing

Um Litla prinsinn

Litli prinsinn (Le Petit Prince) eftir Antoine de Saint-Exupéry er ein ástsælasta saga heims og hefur heillað lesendur í kynslóðir. Sagan fjallar um vináttu, forvitni og mikilvægi þess að sjá heiminn með opnu hjarta. MarTUBE sækir innblástur í þessa tímalausu sögu og umbreytir henni í fallega hannaðar vörur sem færa hlýju, ímyndunarafl og örlitla töfra inn í daglegt líf.

Við sendum feykilega fína hluti, feykilega hratt.
  • Allar pantanir fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs - annars næsta virka dag eftir pöntun.
  • Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.
  • Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu.
  • Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.
  • Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar varan er send af stað. 
Ekki alveg að fíla þetta? Allt í góðu.
  • Vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn.
  • Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.
  • Varan verður að vera í upprunalegu ástandi, ónotuð með verðmerkingum og í upprunalegum pakkningum.
  • Til þess að nýta þennan rétt þurfa viðskiptavinir að koma því á framfæri við Okashi í gegnum tölvupósti á okashi@okashi.is
  • Okashi ber ekki ábyrgð á vörum þangað til að hún berst aftur til okkar. Best er að tryggja endursendingar og hafa þær rekjanlegar.
  • Sendingskostnaður vegna skila er í höndum viðskiptavina.
The Little Prince Travel Speaker

Kaupa núna

Uppselt

Hirono - Mist Walker

Kaupa núna

Uppselt

Hirono - Echo

Kaupa núna

Hirono - Echo

3.390 kr

Uppselt

The Little Prince Sunset Lamp

The Little Prince Sunset Lamp

5.890 kr
Instagram_post_-_55.png
Umhverfið ætti að endurspegla þig

Hvers vegna Okashi?

Við hjá Okashi veljum hönnunarfígúrur og safngripi sem eru meira en bara hlutir á hillu. Í safninu okkar finnur þú vandvaldar hönnunarfígúrur, blind box seríur og plush safngripi sem skera sig úr fyrir karakter, sköpun og einstaka hönnun.

-

Við trúum á sterkar hugmyndir, vönduð smáatriði og gleðina sem felst í að uppgötva eitthvað nýtt. Markmið okkar er að færa skapandi hönnun og safnmenningu til Íslands og gera daglegt umhverfi aðeins persónulegra og áhugaverðara.

  • Við veljum hluti sem eru meira en bara fallegir á hillu.
  • Hver fígúra er hönnuð til að vekja forvitni og færa smá gleði í daglegt líf.
  • Frá hönnunarfígúrum til blind box sería og plush safngripa sem skera sig úr fyrir karakter og sköpun.
  • Fígúrur sem gefa rýminu karakter.
  • Hannaðar með áherslu á smáatriði og einstakan stíl.
  • Gerðar til að vera hluti af daglegu umhverfi.
  • Við trúum því að lífið verði betra með litum, fegurð og smá gleði í kringum okkur.
  • Við veljum hönnun með sterkan karakter og einstaka fagurfræði.
  • Og við teljum að það óvænta sé oft það sem gerir hlutina eftirminnilega.

Allt það sem þú gætir verið að velta fyrir þér

  • Allar pantanir á höfuðborgarsvæðinu fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.

  • Jebb. Óopnuðum vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.

  • Þokkalega! Ef verslað er fyrir 7.990 eða meira, er sendingin frí - og það á við um landsbyggðina líka :)

  • Hvert blind box er úr seríu með vissum fjölda af týpum - og nokkrum sjaldgæfum. Ekki er hægt að vita fyrirfram hvaða stíll er í hverju boxi en það er partur af fjörinu.

Munir sem gleðja

Við veljum hluti sem vekja gleði — hönnun sem færir lit og persónuleika inn í daglegt líf.

Gæði, umfram allt

Við vinnum með traustum framleiðendum og veljum vörur þar sem gæði og hönnun fara saman. Fígúrur sem endast vel og bæta karakter við rýmið þitt.

Takmarkað magn

Sérvaldar seríur og einstakar útgáfur sem þú finnur ekki alls staðar.