Farmer Bob - Flash Back
Farmer Bob – Flash Back er hlýleg og nostalgísk sería sem leiðir Farmer Bob aftur inn í heim minninga, tilfinninga og augnablika sem móta lífið. Serían sækir innblástur til bernskunnar, drauma og hugsanna sem hafa varðveist líkt og senur úr persónulegu minningaleikhúsi.
Hver fígúra er vandlega hönnuð með mjúkum formum, mildum litum og ríkum smáatriðum sem undirstrika tilfinningalega dýpt seríunnar.
Fígúrurnar henta jafnt sem safngripir og sem hlýlegt skraut á hillur, skrifborð eða náttborð.
Serían inniheldur tólf almenna stíla og tvo sjaldgæfa leynistíla.
Grunnstílar (Regular):
- Heartbeat Drums
- Gentle Waiting
- Bucket List
- Silent Harbor
- Cardboard Vow
- Cozy Time
- Midnight Mischief
- Melt Mood
- My Secret
- Happy Birthday
- Away Thoughts
- Tiny World
Secret stílar (sjaldgæfir):
- Lucky Moment
- Turn Back Time
Athugið að þetta er blind box vara og ekki er hægt að velja ákveðna fígúru; innihald hvers box kemur aðeins í ljós við opnun.
Við sendum feykilega fína hluti, feykilega hratt.
- Allar pantanir fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs - annars næsta virka dag eftir pöntun.
- Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.
- Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu.
- Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.
- Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar varan er send af stað.
Ekki alveg að fíla þetta? Allt í góðu.
- Vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn.
- Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.
- Varan verður að vera í upprunalegu ástandi, ónotuð með verðmerkingum og í upprunalegum pakkningum.
- Til þess að nýta þennan rétt þurfa viðskiptavinir að koma því á framfæri við Okashi í gegnum tölvupósti á okashi@okashi.is
- Okashi ber ekki ábyrgð á vörum þangað til að hún berst aftur til okkar. Best er að tryggja endursendingar og hafa þær rekjanlegar.
- Sendingskostnaður vegna skila er í höndum viðskiptavina.
Hvers vegna
Við hjá Okashi veljum hönnunarfígúrur og safngripi sem eru meira en bara hlutir á hillu. Í safninu okkar finnur þú vandvaldar hönnunarfígúrur, blind box seríur og plush safngripi sem skera sig úr fyrir karakter, sköpun og einstaka hönnun.
-
Við trúum á sterkar hugmyndir, vönduð smáatriði og gleðina sem felst í að uppgötva eitthvað nýtt. Markmið okkar er að færa skapandi hönnun og safnmenningu til Íslands og gera daglegt umhverfi aðeins persónulegra og áhugaverðara.
- Við veljum hluti sem eru meira en bara fallegir á hillu.
- Hver fígúra er hönnuð til að vekja forvitni og færa smá gleði í daglegt líf.
- Frá hönnunarfígúrum til blind box sería og plush safngripa sem skera sig úr fyrir karakter og sköpun.
- Fígúrur sem gefa rýminu karakter.
- Hannaðar með áherslu á smáatriði og einstakan stíl.
- Gerðar til að vera hluti af daglegu umhverfi.
- Við trúum því að lífið verði betra með litum, fegurð og smá gleði í kringum okkur.
- Við veljum hönnun með sterkan karakter og einstaka fagurfræði.
- Og við teljum að það óvænta sé oft það sem gerir hlutina eftirminnilega.
Allt það sem þú gætir verið að velta fyrir þér
-
Allar pantanir á höfuðborgarsvæðinu fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.
-
Jebb. Óopnuðum vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.
-
Þokkalega! Ef verslað er fyrir 7.990 eða meira, er sendingin frí - og það á við um landsbyggðina líka :)
-
Hvert blind box er úr seríu með vissum fjölda af týpum - og nokkrum sjaldgæfum. Ekki er hægt að vita fyrirfram hvað stíll er í hverju boxi en það er partur af fjörinu.