Skullpanda - Baby Orchid

21.990 kr
Til á lagerBara 1 eintök eftirUppselt
Magn
Gjafavara sem gleður
Vandað handbragð
Lífgar upp á umhverfið
Lítil umgjörð, Stór áhrif

Skullpanda – Baby Orchid Yiqing (Regular / Purple) er takmörkuð hönnunarfígúra frá Pop Mart, hönnuð af listamanninum Xiong Miao, skapara Skullpanda. Fígúran sameinar einkennandi stíl Skullpanda við mjúka og næstum draumkennda fagurfræði, þar sem blómainnblástur og fágað form skapa rólegt en áberandi yfirbragð.

Þetta er stök og stærri fígúra (ekki blind box), unnin með meiri áherslu á heildarform og útfærslu en hefðbundnar seríur. Baby Orchid Yiqing sker sig úr fyrir fíngerð höfuðskraut og vandaða framsetningu sem gefur henni sterkan karakter. Stærð: um 13 cm á hæð

Fígúran er gefin út í takmörkuðu upplagi, aðeins 1.299 eintökum, sem gerir hana að eftirsóttum safngrip fyrir aðdáendur Skullpanda og hönnunarfígúra.

Vörumerki: Pop Mart
Hönnun: Skullpanda eftir Xiong Miao
Heiti: Orchid Yiqing
Sería: Skullpanda – Baby Orchid
Efni: ABS
Stærð: um 13 cm á hæð
Útgáfa: Regular (Purple)

Ekki blind box
Stök safnfígúra
Útgáfudagur: 6. september 2024
Takmarkað upplag: 1.299 eintök
Aldur: 15 ára og eldri

Við sendum feykilega fína hluti, feykilega hratt.
  • Allar pantanir fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs - annars næsta virka dag eftir pöntun.
  • Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.
  • Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu.
  • Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.
  • Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar varan er send af stað. 
Ekki alveg að fíla þetta? Allt í góðu.
  • Vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn.
  • Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.
  • Varan verður að vera í upprunalegu ástandi, ónotuð með verðmerkingum og í upprunalegum pakkningum.
  • Til þess að nýta þennan rétt þurfa viðskiptavinir að koma því á framfæri við Okashi í gegnum tölvupósti á okashi@okashi.is
  • Okashi ber ekki ábyrgð á vörum þangað til að hún berst aftur til okkar. Best er að tryggja endursendingar og hafa þær rekjanlegar.
  • Sendingskostnaður vegna skila er í höndum viðskiptavina.
Skullpanda - OOTD Glaring

Kaupa núna

Uppselt

Skullpanda - The Feast Begins

Kaupa núna

Uppselt

Skullpanda - Image of Reality

Kaupa núna

Uppselt

Skullpanda - Baby Orchid

Skullpanda - Baby Orchid

21.990 kr
Instagram_post_-_55.png
Umhverfið ætti að endurspegla þig

Hvers vegna Okashi?

Við hjá Okashi veljum hönnunarfígúrur og safngripi sem eru meira en bara hlutir á hillu. Í safninu okkar finnur þú vandvaldar hönnunarfígúrur, blind box seríur og plush safngripi sem skera sig úr fyrir karakter, sköpun og einstaka hönnun.

-

Við trúum á sterkar hugmyndir, vönduð smáatriði og gleðina sem felst í að uppgötva eitthvað nýtt. Markmið okkar er að færa skapandi hönnun og safnmenningu til Íslands og gera daglegt umhverfi aðeins persónulegra og áhugaverðara.

  • Við veljum hluti sem eru meira en bara fallegir á hillu.
  • Hver fígúra er hönnuð til að vekja forvitni og færa smá gleði í daglegt líf.
  • Frá hönnunarfígúrum til blind box sería og plush safngripa sem skera sig úr fyrir karakter og sköpun.
  • Fígúrur sem gefa rýminu karakter.
  • Hannaðar með áherslu á smáatriði og einstakan stíl.
  • Gerðar til að vera hluti af daglegu umhverfi.
  • Við trúum því að lífið verði betra með litum, fegurð og smá gleði í kringum okkur.
  • Við veljum hönnun með sterkan karakter og einstaka fagurfræði.
  • Og við teljum að það óvænta sé oft það sem gerir hlutina eftirminnilega.

Allt það sem þú gætir verið að velta fyrir þér

  • Allar pantanir á höfuðborgarsvæðinu fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.

  • Jebb. Óopnuðum vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.

  • Þokkalega! Ef verslað er fyrir 7.990 eða meira, er sendingin frí - og það á við um landsbyggðina líka :)

  • Hvert blind box er úr seríu með vissum fjölda af týpum - og nokkrum sjaldgæfum. Ekki er hægt að vita fyrirfram hvaða stíll er í hverju boxi en það er partur af fjörinu.

Munir sem gleðja

Við veljum hluti sem vekja gleði — hönnun sem færir lit og persónuleika inn í daglegt líf.

Gæði, umfram allt

Við vinnum með traustum framleiðendum og veljum vörur þar sem gæði og hönnun fara saman. Fígúrur sem endast vel og bæta karakter við rýmið þitt.

Takmarkað magn

Sérvaldar seríur og einstakar útgáfur sem þú finnur ekki alls staðar.