Laura - Sweet Monster Party
Hversdagurinn má vera litríkari.
Okashi er íslensk hönnunar- og safngripaverslun með áherslu á austur-asíska hönnun, menningu og sköpunargleði.
Ekki eru öll skrímsli ógnvekjandi. Laura – Sweet Monster Party býður þér inn í litríkan heim þar sem skrítnar verur, glettni og ímyndunarafl mætast í heillandi hönnun.
Serían leikur sér með andstæður og umbreytir klassískum skrímslum í litrík og sjarmerandi hönnunarverk. Hver persóna hefur sinn eigin svip og persónuleika þar sem sakleysi, húmor og örlítil dulúð blandast saman og skapa heim sem er bæði fjörugur og eftirminnilegur.
Með ríkulegum smáatriðum, mjúkum litum og sterkri hönnunarstefnu fangar Sweet Monster Party þá gleði sem felst í því að leyfa ímyndunaraflinu að ráða ferðinni. Serían höfðar jafnt til safnara sem kunna að meta nútímahönnun og þeirra sem elska karaktera með einstakan sjarma.
Við sendum feykilega fína hluti, feykilega hratt.
- Allar pantanir fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs - annars næsta virka dag eftir pöntun.
- Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.
- Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu.
- Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.
- Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar varan er send af stað.
Ekki alveg að fíla þetta? Allt í góðu.
- Vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn.
- Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.
- Varan verður að vera í upprunalegu ástandi, ónotuð með verðmerkingum og í upprunalegum pakkningum.
- Til þess að nýta þennan rétt þurfa viðskiptavinir að koma því á framfæri við Okashi í gegnum tölvupósti á okashi@okashi.is
- Okashi ber ekki ábyrgð á vörum þangað til að hún berst aftur til okkar. Best er að tryggja endursendingar og hafa þær rekjanlegar.
- Sendingskostnaður vegna skila er í höndum viðskiptavina.
Allt það sem þú gætir verið að velta fyrir þér
-
Allar pantanir á höfuðborgarsvæðinu fyrir kl. 13 eru afgreiddar samdægurs. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar.
-
Jebb. Óopnuðum vörum má skila innan 14 daga frá því að kaup ganga í gegn. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda.
-
Þokkalega! Ef verslað er fyrir 12.990 eða meira, er sendingin frí - og það á við um landsbyggðina líka :)
-
Hvert blind box er úr seríu með vissum fjölda af týpum - og nokkrum sjaldgæfum. Ekki er hægt að vita fyrirfram hvaða stíll er í hverju boxi en það er partur af fjörinu.